![Umferð Sett var umferðarmet á hringveginum í janúarmánuði.](/myndir/gagnasafn/2025/02/08/181fbb2c-509c-4ac7-9e2a-437cea67557f.jpg)
Umferð á hringveginum jókst um 4,2% í janúar sl. borið saman við janúar á síðasta ári og hefur aldrei verið meiri í þeim mánuði.
Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að alls fóru rúmlega 70 þúsund ökutæki að jafnaði á sólarhring yfir 16 lykilteljara á hringveginum en á sama tímabili á síðasta ári fóru tæplega 68 þúsund yfir þessi sömu snið.
Mest aukning á Vesturlandi
Vegagerðin segir að mestu muni um að umferð jókst um 6% yfir mælisnið á Vesturlandi og 4,3% á og í grennd við höfuðborgarsvæðið. Öll svæði sýndu aukningu en minnst jókst umferð um Norðurland, eða um 0,7%.
Af einstaka mælisniðum sýndi mælisnið á Mýrdalssandi mesta aukningu eða 14,9% en aðeins eitt snið sýndi samdrátt; það var á Mývatnsöræfum þar sem umferð dróst saman um 4,3%.
...