![Jinjer eru Eugene Abdukhanov, Vladislav Ulasevitsj, Tatiana Shmayluk og Roman Ibramkhalilov.](/myndir/gagnasafn/2025/02/08/b7797e13-b354-430e-af84-9760c3019105.jpg)
Þetta er eins konar konseptplata, skulum við segja. Hún er í reynd um andstæð orð, sjónarmið, hugmyndir og glímuna sem það býður upp á. Hún er um ágreining, ytri átök og átökin sem búa innra með okkur öllum,“ segir Tatiana Shmayluk, söngkona/rymjari málmbandsins Jinjer í samtali við málmgagnið Metal Hammer en fimmta breiðskífa þess, Duél, kom út á föstudaginn. Yrkisefnið kemur svo sem ekki á óvart en Jinjer er frá Úkraínu, þar sem stríð hefur geisað í bráðum þrjú ár.
Fyrst eftir að stríðið braust út gerðu fjórmenningarnir í Jinjer hlé á tónsköpun sinni og ferðalögum til að geta tekið þátt í hjálparstarfi heima fyrir. Þegar við blasti að stríðið myndi dragast á langinn tóku þau hins vegar upp þráðinn; töldu það betri leið til að minna á hildarleikinn og berjast fyrir réttlæti og friði.