Aðalmeðferð í máli Alfreðs Erlings Þórðarsonar hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Alfreð er ákærður fyrir að hafa orðið hjónum á sjötugsaldri að bana í Neskaupstað 21. ágúst í fyrra. Fjallað var ítarlega um mál Alfreðs í Morgunblaðinu í síðustu…
Aðalmeðferð í máli Alfreðs Erlings Þórðarsonar hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Alfreð er ákærður fyrir að hafa orðið hjónum á sjötugsaldri að bana í Neskaupstað 21. ágúst í fyrra. Fjallað var ítarlega um mál Alfreðs í Morgunblaðinu í síðustu viku, en hann var úrskurðaður í nauðungarvistun á geðdeild þegar morðin voru framin.
Alfreð, sem er 45 ára, á sér langa sögu um geðrænan vanda, hefur haft miklar ranghugmyndir og þrívegis verið úrskurðaður í nauðungarvistun á geðdeild á innan við ári. Síðasti úrskurður um nauðungarvistun féll þann 6. júní og var Alfreð þá úrskurðaður í allt að 12 vikna vistun, með möguleika á rýmkun.