![Vilhjálmur Árnason](/myndir/gagnasafn/2025/02/10/22241710-90a0-481e-ba32-7662482276d8.jpg)
Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
„Eftirlitshlutverk Alþingis er mikilvægt og það verður af nægu að taka hjá nefndinni. Það er augljóst að við þurfum að stuðla að því að almenningur hafi trú og traust á þinginu og við komumst ekki hjá því að skoða mál sem varða fjármál, styrki og upplýsingagjöf stjórnmálaflokkanna,“ segir Vilhjálmur Árnason, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, í samtali við Morgunblaðið og vísar þar til frétta undanfarinna daga af fjárstyrkjum til stjórnmálaflokka.
Hann segir einnig að með fyrstu málum sem nefndin muni taka til skoðunar sé framkvæmd síðustu alþingiskosninga, enda sé það hlutverk nefndarinnar. Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar verður á miðvikudaginn.
„Nefndin þarf að koma sér saman
...