Lokaathöfn alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand í Frakklandi var haldin með pomp og prakt um helgina. Þar var tilkynnt að Ingvar E. Sigurðsson hefði hlotið verðlaun hátíðarinnar sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni O…
![Ingvar E. Sigurðsson](/myndir/gagnasafn/2025/02/11/24826bad-9cdf-48c7-bba9-5c741c198c81.jpg)
Ingvar E. Sigurðsson
Lokaathöfn alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand í Frakklandi var haldin með pomp og prakt um helgina. Þar var tilkynnt að Ingvar E. Sigurðsson hefði hlotið verðlaun hátíðarinnar sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni
O (Hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar.
Segir í tilkynningu að myndin, sem sé framleidd af Heather Millard, sé ljóðræn frásögn af manni sem vilji standa sig en hans helsta hindrun sé hann sjálfur. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Eru þetta þriðju alþjóðlegu verðlaun myndarinnar en hún er einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.