
Fylkir tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitaleik A-deildar deildabikars karla í knattspyrnu með því að leggja KR að velli, 2:1, í undanúrslitum í Árbænum. Sigurmark Fylkis kom á þriðju mínútu uppbótartíma.
Fylkir mætir annaðhvort Val eða ÍR í úrslitaleiknum. Þau mætast á þriðjudagskvöld á Hlíðarenda og úrslitaleikurinn fer svo fram næstkomandi laugardag.
Í gærkvöldi var það fyrirliðinn Ragnar Bragi Sveinsson sem kom heimamönnum í Fylki í forystu eftir átta mínútna leik þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu.
Eiður Gauti Sæbjörnsson jafnaði metin fyrir KR á 37. mínútu þegar hann slapp einn í gegn eftir skyndisókn og skoraði. Þegar virtist stefna í framlengingu skoraði Eyþór Aron Wöhler, sem kom til Fylkis frá KR, sigurmarkið á þriðju mínútu uppbótartíma er hann slapp í gegn og lagði boltann fram hjá Halldóri Snæ Georgssyni í marki KR.