Barnavagninn er framleiddur í mjög takmörkuðu upplagi en aðeins fimm hundruð eintök verða búin til. Það má búast við löngum biðlistum um heim allan.
Barna­vagn­inn er fram­leidd­ur í mjög tak­mörkuðu upp­lagi en aðeins fimm hundruð ein­tök verða búin til. Það má bú­ast við löng­um biðlist­um um heim all­an.

Ítalski bíla­fram­leiðand­inn Lam­borg­hini og enski barna­vagna­fram­leiðand­inn Sil­ver Cross hafa fram­leitt einn dýr­asta barna­vagn dags­ins í dag. Vagn­inn kem­ur í tak­mörkuðu upp­lagi en aðeins fimm hundruð ein­tök verða fram­leidd. Hann mun kosta í kring­um 900 þúsund krón­ur.

Vagn­inn, sem heit­ir Reef Al Arancio, er fram­leidd­ur úr hágæðaefn­um eins og rúskinni og ít­ölsku leðri. Hann er svart­ur að lit með app­el­sínu­gul­um smá­atriðum sem gera vagn­inn ein­stak­an. Vagn­in­um fylgja alls kon­ar auka­hlut­ir sem sjá ný­bökuðum for­eldr­um fyr­ir öllu því helsta.

Það ætti að vera þægi­legt að keyra lúxuskerr­una, enda er það einn helsti bíla­fram­leiðandi heims sem kem­ur að hönn­un­inni. Einnig er mikið lagt í út­litið eins og við var að bú­ast. Barna­vagn­ar frá Sil­ver Cross hafa verið gríðarlega vin­sæl­ir alla tíð, en fyr­ir­tækið var stofnað árið 1877. Sil­ver Cross-vagn­ar fást hér á landi en það er þó

...