Ís Ben & Jerry’s
Ís Ben & Jerry’s — AFP/​Just­in Sulli­v­an

Ísfram­leiðand­inn Ben & Jerry’s hef­ur höfðað mál gegn móður­fé­lagi sínu, Uni­lever, og sakað það um að brjóta gegn samn­ing­um um samruna fyr­ir­tækj­anna með því að reka for­stjór­ann Dav­id Stever án samþykk­is stjórn­ar­inn­ar.

Kem­ur þetta fram í frétt CNN.

Deil­an milli fyr­ir­tækj­anna hef­ur staðið yfir síðan 2021, en ís­fram­leiðand­inn held­ur því fram að Uni­lever hafi ít­rekað reynt að þagga niður í fé­lags­legri þátt­töku sinni á ýms­um mál­efn­um. Þetta fel­ur í sér að hindra færsl­ur á sam­fé­lags­miðlum um mál­efni eins og fóst­ur­eyðing­ar, lofts­lags­breyt­ing­ar, al­menna heil­brigðisþjón­ustu og stuðning við palestínska flótta­menn. mj@mbl.is