Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son, nýr mennta- og barna­málaráðherra, fædd­ist í Reykja­vík 14. júlí 1955. Hann er son­ur þeirra Krist­ins Jóns­son­ar og Andr­eu Guðmunds­dótt­ur sem bæði eru lát­in. Eig­in­kona Guðmund­ar Inga er Hulda Mar­grét Bald­urs­dótt­ir og eiga þau fjóra syni
Guðmundur Ingi Kristinsson
Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son

<autotextwrap>

Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son, nýr mennta- og barna­málaráðherra, fædd­ist í Reykja­vík 14. júlí 1955. Hann er son­ur þeirra Krist­ins Jóns­son­ar og Andr­eu Guðmunds­dótt­ur sem bæði eru lát­in. Eig­in­kona Guðmund­ar Inga er Hulda Mar­grét Bald­urs­dótt­ir og eiga þau fjóra syni. Með fyrri konu sinni, Ingu Dóru Jóns­dótt­ur, átti Guðmund­ur Ingi tvo syni en ann­ar þeirra er lát­inn.

Guðmund­ur Ingi er með gagn­fræðapróf frá tré­smíðadeild Ármúla­skól­ans í Reykja­vík. Seinna nam hann skrif­stofu­störf, vefsíðugerð og mynd­vinnslu í Nýja tölvu- og viðskipta­skól­an­um.

Hann var lög­reglumaður í Grinda­vík og Kefla­vík á ár­un­um 1974-1980 og starfaði eft­ir það í versl­un­inni Brynju við Lauga­veg í Reykja­vík frá 1981-1993. Á ár­un­um 2004-2012 sat Guðmund­ur Ingi í trúnaðarráði VR og var full­trúi þess á árs­fund­um Alþýðusam­bands Íslands.

...