Vilhjálmur Vilmundarson á 90 ára afmæli í dag. Hann keppti í kúluvarpi á Ólympíuleikunum í London 1948. Hann giftist Rannveigu Jónasdóttur frá Akranesi árið 1949 og eignuðust þau þrjú börn: Aðalheiði hjúkrunarfræðing, Vilmund sjúkraþjálfara og Sigurgeir tölvunarfræðing. Vilhjálmur byrjaði að vinna hjá Tollstjóra 1949 og vann þar í tæp 39 ár. Síðan vann hann hjá Landsbanka Íslands í tíu ár. Í dag ætlar hann að fagna afmælinu með fjölskyldunni.