![Læknisfræði Í áratugi hafa vísindin ekki staðið andspænis jafn alvarlegum faraldri eða smitsjúkdómi og nú, segir Ólafur Baldursson.](https://cdni.mbl.is/m2/woronn8bQgyNkvqRC0ZBq8ajE0E=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2020/10/12/GQU15T45B.1_1216940.jpg)
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í baráttunni við COVID-19 er vísindalegri þekkingu beitt með mun markvissari hætti, en áður hefur verið gert í heilbrigðisvísindnum og þjónustu við sjúklinga,“ segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. „Í raun er magnað að starfa á háskólasjúkrahúsi við þessar aðstæður, sem enginn óskaði þó eftir. Kórónuveiran mun fyrirsjáanlega breyta mörgu í heilbrigðisvísindum á komandi árum. Í áratugi hafa læknavísindin ekki staðið andspænis jafn alvarlegum og útbreiddum faraldri eða smitsjúkdómi og nú er á kreiki; veiru sem við höfum nú þó öðlast talsverða þekkingu á.“
Faraldurinn ekki óvæntur
Tæpast er ofsagt í myndrænu máli að COVID-19 hafi sett heiminn í handbremsu. Gangvirki samfélagsins snýst á hálfum hraða og margt í daglegu lífi okkar sem við töldum sjálfsagt liggur niðri. Áhersla
...