Við Bryggjugötu Mikið útsýni er yfir höfnina frá þessari horníbúð sem kostar hálfan milljarð. Neðar í húsinu er sýningaríbúð á 249 milljónir.
Við Bryggjugötu Mikið útsýni er yfir höfnina frá þessari horníbúð sem kostar hálfan milljarð. Neðar í húsinu er sýningaríbúð á 249 milljónir. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Fyrstu íbúarnir eru nú að koma sér fyrir á Austurhöfn við Hörpu og hafa selst íbúðir fyrir um milljarð króna í húsunum sex. Alls 71 íbúð er á Austurhöfn og kosta þær allt að hálfum milljarði króna.

Gunnar Thoroddsen, stjórnarformaður hjá Íslenskum fasteignum, segir íbúa munu hafa þjónustufulltrúa sem verður þeim innan handar um ýmis verk.

Geta séð um veislurnar

Til viðbótar sé hægt að kaupa enn meiri þjónustu frá fyrirtækinu ERT Concierge, til dæmis við ferðaleiðsögn og veisluhöld. Ofan á það geti íbúar fengið þjónustu Reykjavík Edition-lúxushótelsins á sérkjörum en það verður opnað í sumar. Þá til dæmis fengið leigðan kokk, fengið sendan morgunverð og látið sjá um þrif en íbúarnir munu hafa aðgang að hótelstjóra.

Spurður um markhópinn fyrir íbúðir sem kosta hundruð milljóna segir Gunnar horft til innlendra

...