Eftir Hauk Ágústsson: „Allt frá upphafi var hernaður aðalútbreiðsluleið íslams.“
Haukur Ágústsson
Haukur Ágústsson

Eftir komuna til Medínu gerðist Múhameð árásar- og landvinningagjarn. Á þessum tíma tók hann að fá nýjar opinberanir, sem iðulega boðuðu stríð og önnur átök í nafni Allahs og siðarins, sem honum tengdist.

Nokkur dæmi úr Kóraninum:

„Berjist við þá, uns lokið er skurðgoðadýrkun og trúin á Allah ríkir ein öllum ofar.“ (Vers 8:39, þýð. Helga Hálfdanarsonar, HH.)

„Berjist gegn þeim sem þegið hafa ritningarnar (Gyðingar, Kristnir) en trúa hvorki á Allah né hinn Efsta Dag, þeim sem banna ekki það sem Allah hefur bannað og Sendiboði Hans, þeim sem rækja ekki hina sönnu trú, þar til þeir reiða af hendi skatt og ganga yður á vald.“ (Vers 9:29, þýð. HH.)

„Ó, þér trúaðir, herjið á hina vantrúuðu sem búa í grennd við yður. Látið þá kenna á hörku yðar. Vitið að Allah stendur með hinum réttlátu.“ (9:123, þýð. HH.)

Dæmi úr hadith-ritunum (þau fjalla um orð og gerðir Múhameðs og hafa helgi á

...