Eftir Sighvat Björgvinsson: „Orðið „mannkyn“ merkir ekki bara kyn karla heldur kyngreind alls þess mannfólks sem jörð okkar byggir. Þarf virkilega að segja málfarsráðunaut RÚV það?“
Sighvatur Björgvinsson
Sighvatur Björgvinsson

Um sl. áramót fór fram á RÚV það sem áður var nefnt val á manni ársins . Nú brá svo við að í stað þess var sagt í RÚV að fram hefði farið val á manneskju ársins . Mér er sagt að ástæðan hafi verið sú að þú – málfarsráðunautur ríkisútvarpsins – hafir ekki viljað viðurkenna í orði að karlmenn og kvenmenn gætu hvor tveggja verið menn . Værir sem sé ekki sammála Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, þegar hún tjáði sig með þessum hætti í kosningabaráttu sinni: „Fólk á ekki að velja mig vegna þess að ég er kona, heldur vegna þess að ég er maður .“ Þitt álit væri að með engu móti mætti rugla kynjunum saman með því að kalla bæði konur og karla menn .

Tæknimaður

Ef svo er, hvernig stendur þá á því að þú heimilar ríkisútvarpinu að greina frá því að eftir sérhvern þátt sem fluttur er...