Steinn Logi Steinsson fæddist 16. ágúst 1983 í Reykjavík. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 7. júní 2023.

Foreldrar Steins eru Anna H. Pétursdóttir húsmóðir og formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, f. 1958, og Steinn Logi Björnsson viðskiptafræðingur og fv. forstjóri, f. 1959.

Steinn var elstur þriggja systkina, hin eru: Ylfa Ýr viðskiptafræðingur, f. 1985, og Perla læknir, f. 1989.

Ylfa Ýr er gift Örvari Geir Örvarssyni húsasmíðameistara og viðskiptafræðingi, f. 1979. Börn þeirra eru Katla Sólveig, f. 2016, og Jökull Hrafn, f. 2018. Sonur Örvars af fyrra hjónabandi er Emil, f. 2008. Þau búa í Reykjavík. Perla er í sambúð með Gunnlaugi Snæ Ólafssyni stjórnmálafræðingi og blaðamanni, f. 1984. Dóttir Gunnlaugs af fyrra sambandi er Snædís, f. 2014. Þau búa í Uppsölum í

...