Það er súrrealískt að verða vitni að femínistum og samkynhneigðu fólki styðja hatursmenn sína í Hamas með ráðum og dáð.
Einar S. Hálfdánarson
Einar S. Hálfdánarson

Einar S. Hálfdánarson

Miklar hörmungar dynja á íbúum Gasa. Auðvitað er sökin valdhafanna á Gasa, Hamas-hryðjuverkasamtakanna. Hryðjuverkamennirnir sem gerðu viðbjóðslegri árás á Ísrael en orð fá lýst dyljast sjálfir í neðanjarðargöngum undir spítölum og skólum líkt og meindýr. Sótt er að þeim líkt og Vesturlönd urðu að gera í Mosul, Raqqa og víðar þegar gengið var milli bols og höfuðs á ISIS. Ef Hamas framseldu hryðjuverkamennina og legðu niður vopn væri þessum hörmungum samdægurs lokið.

RÚV og RÚV2 stunda allt annan fréttaflutning af málinu en vandaðir vestrænir fjölmiðlar. Hér er þeirri skoðun haldið á loft að gyðingar frá Evrópu hafi flutt til lands sem heitir „Palestína“ og stolið því af íbúunum. Sannleikurinn er allt annar. „Palestína“ var stórt landsvæði sem náði yfir núverandi Ísrael og Jórdaníu og inn

...