Selma Dögg Björgvinsdóttir, miðjumaður úr Víkingi, var besti leikmaðurinn í 9. umferð Bestu deildar kvenna

Selma Dögg Björgvinsdóttir, miðjumaður úr Víkingi, var besti leikmaðurinn í 9. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Selma lék mjög vel og skoraði seinna mark Víkings í óvæntum sigri á toppliði Breiðabliks, 2:1, síðasta fimmtudag. Selma fékk tvö M fyrir frammistöðu sína og er í úrvalsliði Morgunblaðsins úr 9. umferðinni sem sjá má hér fyrir ofan.