![Staðan í apríl Búið var að setja upp útveggi á vestustu einingunni, eða fingrinum.](https://cdni.mbl.is/m2/5IJJxM7Rfbc9rVHOWrWYwJ_VaFU=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/06/27/h27-20a_1356104.jpg)
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Uppsetningu útveggja á nýjum meðferðarkjarna Landspítalans miðar vel og er búið að klæða tvo af fimm hlutum byggingarinnar.
Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Nýs Landspítala ohf. (NLSH), segir undirbúning að uppsetningunni hafa hafist í október síðastliðnum og að áformað sé að ljúka henni í janúar eða febrúar á næsta ári.
Fram kom í Morgunblaðinu 15. desember síðastliðinn að fyrsta útveggjaeiningin var sett upp föstudaginn 1. desember. Nánar tiltekið á fyrstu hæð suðurenda vestustu stangarinnar, gegnt BSÍ, en hlutar byggingarinnar eru einnig nefndir stangir. Fjórar stangirnar eru sex hæðir, auk 2ja hæða kjallara, en fimmta stöngin á milli þeirra er lægri bygging.
„Það eru nú um 50 manns að störfum í uppsetningarteymunum. Veðurfar hefur verið nokkuð hagstætt og hefur úrkoma ekki verið vandamál. Þó getur
...