![Willum Þór Þórsson](/myndir/gagnasafn/2024/07/02/j2-2a_1356409.jpg)
Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segist vinna með Lyfjastofnun Íslands til að tryggja að skaðaminnkandi nefúðalyf, svokallað Naloxon, komist í lausasölu hér á landi. Kemur þetta fram í skriflegu svari ráðherrans til Morgunblaðsins.
Lausasala á lyfinu í apótekum hefur verið í skoðun hjá ráðuneytinu síðan í apríl í fyrra en ekki er útlit fyrir að svo verði á næstunni vegna hindrana sem snúa að markaðsleyfi. Samningsskuldbindingar markaðsleyfishafa lyfsins í Noregi við þriðja aðila eru stærsta hindrun þess að lyfið verði að lausasölulyfi hér.
Í svari ráðherrans segir að þessi hindrun hafi þó ekki áhrif á þá dreifingu sem þegar er til staðar.
„Markmiðið er greitt aðgengi einstaklinga, allra viðbragðsaðila og annarra þjónustuveitenda svo hægt sé að bregðast hratt við ef upp kemur ópíóðaskömmtun. Hindrun á
...