Margrét Hrefna Ögmundsdóttir fæddist 1. ágúst 1932. Hún lést 18. júní 2024.

Útför Margrétar Hrefnu Ögmundsdóttur fór fram 25. júní 2024.

Elsku amma Magga. Það er erfitt að meðtaka það að þú sért ekki lengur hér hjá okkur, að ég geti ekki lengur hringt í þig og spjallað um daginn og veginn, að ég finni þig ekki lengur í Goðabyggðinni þar sem þér leið svo vel. Á svona stundum er óendanlega dýrmætt að eiga hugljúfar minningar um þá sterku, umhyggjusömu og góðu konu sem þú varst. Frá því ég kom í þennan heim hefur þú alltaf passað upp á mig og haft mig undir þínum verndarvæng. Ég var vissulega ekki á planinu hjá pabba og mömmu á sínum tíma, en þú sást til þess að ég gleymdist ekki og fengi að kynnast föðurfjölskyldu minni. Ég á svo margar góðar minningar úr barnæsku frá heimsóknum í Goðabyggðina. Allar einkennast þær af gleði og leik. Ég man hvernig við

...