![Fiðlusnillingur Sergey Malov mun bæði leika á fiðlu og hið einstaka hljóðfæri violoncello da spalla á hátíðinni.](https://cdni.mbl.is/m2/7v2iyujNbJpDBsDzaCMjCK4HZnU=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/03/j3-25a_1356498.jpg)
Anna Rún Frímannsdóttir
annarun@mbl.is
„Persónulega finnst mér hápunkturinn vera koma Sergey Malov fiðlusnillings því hann er í mjög miklum sérflokki í heiminum í dag, bæði sem fiðluleikari og leikari á þetta sérstaka hljóðfæri, spalla. Hann er búinn að hasla sér völl síðustu ár sem einn fremsti fiðluleikari í heimi þannig að það er mikil upplifun að fá hann til landsins,” segir Benedikt Kristjánsson, listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri Sumartónleika í Skálholti, inntur eftir því hvað beri hæst á hátíðinni í ár. Bætir hann því við að hljóðfærið violoncello da spalla sé eins konar lítið selló, þó stundum með fleiri strengjum, sem leikið sé á eins og fiðlu.
Þétt og vegleg dagskrá
Af öðrum viðburðum sumarsins nefnir Benedikt frumflutning á verkum Báru Gísladóttur sem að þessu sinni er staðartónskáld hátíðarinnar.
„Hún er
...