Emma Hawkins skoraði þrennu fyrir Austfjarðaliðið FHL í gærkvöld þegar það vann stórsigur á Fram, 5:1, í 1. deild kvenna í fótbolta á Reyðarfirði. FHL er með 22 stig á toppi deildarinnar en Afturelding með 19 stig og HK með 14 eru næst á eftir. Samantha Smith gerði hin tvö mörk FHL en Alda Ólafsdóttir skoraði fyrir Fram sem er í sjöunda sæti með 11 stig.

Sjö leikmenn í Bestu deild karla í fótbolta voru í gær úrskurðaðir í eins leiks bann vegna gulra spjalda. Það eru Viktor Örn Margeirsson hjá Breiðabliki, Adam Örn Arnarson hjá Fram, Arnþór Ari Atlason hjá HK, Birgir Baldvinsson hjá KA, Kristinn Freyr Sigurðsson hjá Val, Elmar Atli Garðarsson

...