Þráinn Sigurðsson fæddist í Reykjavík 31. ágúst 1952. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 23. júní 2024.

Foreldrar hans voru hjónin Hulda Ottesen húsmóðir, f. 24. desember 1914, d. 14. nóvember 1999, og Sigurður L. Þorgeirsson húsasmíðameistari, f. 31. maí 1912, d. 18. júlí 1999. Systkini Þráins eru Hrafnhildur, f. 27. apríl 1936, d. 27. júní 2015, Hildigunnur, f. 17. maí 1940, d. 8. júní 2007, og Jónas, f. 30. janúar 1949.

Þráinn kvæntist 24. júlí 1976 Hrönn Finnsdóttur, f. 1954. Foreldrar hennar voru Finnur Sigurbjörnsson og Guðlaug G. Jónsdóttir sem bæði eru látin.

Börn Þráins og Hrannar eru: 1) Guðlaug Íris, f. 1977, gift Stefáni Rósari Esjarssyni. Þeirra börn eru Hrönn Júlía, f. 2002, Esjar, f. 2005, og Elma Stefanía, f. 2009. 2) Finnur Þór, f. 1982, eiginkona Sunna

...