![Vinakot. Heimilið óskaði eftir því við félagsmálaráðuneytið árið 2019 að gæðaúttekt færi fram á heimilinu. Nú hefur umboðsmaður Alþingis skilað áliti.](https://cdni.mbl.is/m2/1UYzxn6S6GzQelQK4m_L-5Qnqmk=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/04/j4-a2b_1356545.jpg)
Þetta sýna niðurstöður úttektar umboðsmanns Alþingis, sem sinnir óháðu innlendu eftirliti með stöðum þar sem fólk er eða kann að vera frelsissvipt.
Starfsemi búsetuúrræðanna var tekin út í júní 2023 og gaf umboðsmaður út skýrslu sína í gær.
Skjólstæðingar Vinakots og Klettabæjar eru börn á aldrinum 13-18 ára sem eru með svokallaðan fjölþættan vanda.
Þjónustan er á ábyrgð lögheimilissveitarfélaga þeirra er hana sækja. Barnaverndarþjónustu sveitarfélaganna ber hins vegar að fylgjast með gæðum og árangri búsetuúrræða.
Starfsmaður einn með barni
Umboðsmaður gerir athugasemd við að í einhverjum tilfellum hafi barn í úrræði Vinakots verið eitt með starfsmanni. Þá hafi einnig komið fyrir að karlkyns starfsmaður á vakt sé einn með stúlku í sinni umsjá.
Í tilfellum beggja úrræða er skortur á aðkomu faglærðs starfsfólks
...