![Rekstur. Robert F. Michelsen, framkvæmdastjóri Michelsen og Frank Michelsen, eigandi Michelsen.](https://cdni.mbl.is/m2/JU9lsKwJJV9fdo2_n_oX_mmf8QA=/fit-in/1024x0/myndir/gagnasafn/2024/07/04/j4-a32a_1356598.jpg)
„Eftir heimsóknina ákvað afi minn að vera eftir og réð sig í starf á Sauðárkróki. Þann 1. júlí 1909 stofnaði hann síðan sitt eigið fyrirtæki á Sauðárkróki sem þjónaði sýslunum í kring. Þannig hófst þetta allt,” segir Frank.
Hann bætir við að þótt reksturinn sé blómlegur um þessar mundir hafi gengið á ýmsu í gegnum tíðina. Hann minnist þess að stóru síldarárakreppurnar hafi verið erfiðar fyrir fyrirtækið eins og svo mörg önnur á þeim tíma.
„Faðir minn talaði einnig oft um að upp úr þeim tíma sem stríðið var voru innflutningshöft. Það reyndist afar þungt fyrir reksturinn. Á þeim árum var það í höndum örfárra manna hverjir fengu að flytja inn allar vörur. Það var að öllum líkindum mesta áskorunin sem reksturinn hefur glímt við á þessum 115 árum. Allar kreppurnar sem hafa riðið yfir reyndust erfiðar en okkur tókst að lifa þær allar af,” segir Frank.
Einblíndu á Íslendingana
...