Hafsteinn ólst upp á Akranesi en býr í Hafnarfirði.

30 ára Hafsteinn ólst upp á Akranesi en býr í Hafnarfirði. Hann er með B.Sc- og M.Sc-gráðu í vélaverkfræði frá HÍ og starfar sem tæknimaður hjá Stálvík.

Fjölskylda Eiginkona Hafsteins er Svandís Alexía Sveinsdóttir, f. 1993, nemi í uppeldis- og menntunarfræðum við HÍ. Börn þeirra eru Sóldís Eyja, f. 2019, Árdís Móey, f. 2021, og Nökkvi Nóel, f. 2023. Foreldrar Hafsteinn eru Íris Aðalsteinsdóttir, f. 1979, grunnskólakennari á Akranesi, og Ágúst Gunnarsson, f. 1978, varðstjóri á Patreksfirði. Stjúpfaðir Hafsteins og eiginmaður Írisar er Þórhallur Þórðarson, f. 1975, pípulagningamaður.