Erla Halldórsdóttir
Erla Halldórsdóttir

Myndlistarsýningin Samflæði verður opnuð í Gallerí Göngum í Háteigskirkju í dag, fimmtudaginn 4. júlí, kl. 16-18. Þar sýna saman þær Erla Halldórsdóttir og María Loftsdóttir. Í tilkynningu segir að þær hafi báðar stundað myndlist í mörg ár, lagt stund á nám í myndlistarskólum og sótt námskeið innanlands og erlendis. Báðar hafa þær sýnt á samsýningum og María hefur haldið fjölda einkasýninga bæði innanlands og erlendis, m.a. í Japan.

Erla vinnur verk sín í dag að mestu leyti í akrýl og með blandaðri tækni en María vinnur bæði með olíu, akrýl og vatnslitum. Verkin á þessari sýningu eru unnin í akrýl, með blandaðri tækni og vatnslitum. Þær sækja innblástur í náttúruna og umhverfið, en hvor með sínum augum, tilfinningu og litapallettu, að því er segir í tilkynningu frá galleríinu.