Brjánn Árni Bjarnason fæddist 8. júlí 1954. Hann lést 14. júní 2024.
Útför Brjáns fór fram 4. júlí 2024.

Mágur minn, Brjánn, er látinn eftir stutt en erfið veikindi.
Ég hitti Brján þegar ég kynntist Bolla bróður hans. Þeir bjuggu hvor í sinni íbúðinni hlið við hlið að heimili foreldra sinna þannig að samgangurinn var mikill. Þeir áttu ýmislegt sameiginlegt og fóru báðir í Versló og lásu svo læknisfræði.
Brjánn og Steinunn voru einstaklega samrýnd og samstiga hjón. Þau eignuðust dætur sínar, Unni og Elvu, og fluttu síðar til Bandaríkjanna um skeið til frekara náms þegar þær voru mjög ungar.
Brjánn var einstaklega þægilegur og traustur og hafði góða nærveru. Hægt var að ræða við hann um hvað sem var og þeir sem kynntust honum fundu fljótt hve traustur trúnaðarvinur hann var. Þannig var hann vel liðinn af samstarfsfólki og skjólstæðingum í störfum

...