Sorphirða. Kubbur á Ísafirði sinnir sorphirðu víða um land og nú hefur Kópavogur bæst við frá ágúst nk.
Sorphirða. Kubbur á Ísafirði sinnir sorphirðu víða um land og nú hefur Kópavogur bæst við frá ágúst nk. — Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson

Fyrirtækið Kubbur ehf. frá Ísafirði tekur við stórum hluta sorphirðu hjá Kópavogsbæ af Íslenska gámafélaginu í ágúst. Samningurinn er til sex ára, með möguleika á framlengingu í eitt ár í senn, tvisvar sinnum. Bauð Kubbur um 1,8 milljarða í verkið en áætlun Kópavogs var upp á 2,3 milljarða.

Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ var opnað fyrir tilboð í mars sl. í hirðingu á úrgangi frá heimilum í Kópavogi úr tunnum, kerum og djúpgámum.

„Félagið Kubbur var stofnað árið 2006, við höfum verið eitt umfangsmesta fyrirtæki landsins í sorphirðu og úrgangsstjórnun síðan árið 2011,” segir Unnar Hermannsson framkvæmdastjóri Kubbs en Kópavogur er ellefta sveitarfélagið og samningsaðili sem fyrirtækið mun starfa fyrir.

Hin eru Ísafjarðarbær, Bolungarvík, Fjarðabyggð, Ölfus, Vestmannaeyjar, Vesturbyggð, Tálknafjörður, Súðavík, Vestur-Skaftafellssýsla og Snæfellsbær.

„Við kaupum þrjá nýja

...