Skeiðarársandur. Löng röð bíla myndaðist vegna umferðarslyssins.
Skeiðarársandur. Löng röð bíla myndaðist vegna umferðarslyssins. — Ljósmynd/Gísli Reynisson

Ökumaður bifhjóls slasaðist alvarlega í gær er hann féll af hjólinu og hafnaði utan vegar skammt frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi.

Slysið varð um klukkan fjögur og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út til að sækja ökumanninn.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi var einnig kölluð á slysstað til að rannsaka vettvang. Var annarri akreininni lokað og stýrði lögreglan umferð fram hjá á meðan.

Lögreglan kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.