Gísli Ölver Sigurðsson fæddist 2. nóvember 1969. Hann lést 23. júní 2024.

Útför Gísla fór fram 2. júlí 2024.

Einn af okkar bestu er farinn á aðrar veiðilendur. Gísli var alla tíð í kringum mig og mitt fólk, hvort það var sem nágranni, Haukamaður, ferðafélagi, mágur Badda, veiðifélagi, bróðir Rósulindar eða sem maður sem hafði alltaf góða nærveru og góður faðir barna sinna.

Gísla var alltaf til staðar, heill og sterkur. Stóð með sínu fólki, sínum vinum og okkar samfélagi.

Ég minnist helst Gísla, í þessum minningarorðum, sem eins af mestu og bestu veiðifélögum ævi okkar. Við minnumst sérstaklega rjúpuveiðiferða til Borgarfjarðar eystra með Badda mági hans þar sem við lentum í alls konar ævintýrum sem greypt eru í minni

...