![Lyf Stöðug aukning var á notkun þunglyndislyfja frá 2010-2021.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/64c974c7-bce3-41ac-a73e-668afd035257.jpg)
Notkun þunglyndislyfja hjá fullorðnum hefur aukist um þriðjung á síðastliðnum tveimur áratugum. Notkun þunglyndislyfja hérlendis er sú mesta innan OECD, að minnsta kosti frá árinu 2007 þegar tekið var að birta tölulegar upplýsingar um notkun þunglyndislyfja.
Mikill kynjamunur er á notkun þunglyndislyfja, en árið 2023 voru nær tvöfalt fleiri konur sem leystu út þunglyndislyf en karlar
Stöðug aukning hefur verið á notkun þunglyndislyfja á Íslandi frá 2010 til 2021, en síðan þá hefur afgreitt magn þunglyndislyfja haldist nær óbreytt.
Árið 2021 voru afgreiddir 166 dagskammtar á hverja 1.000 íbúa á dag og árið 2023 voru 168 skammtar afgreiddir á hverja 1.000 íbúa.
Þetta kemur fram í nýjasta Talnabrunni landlæknis um líðan fullorðinna á Íslandi. » 22