Frakkar og Spánverjar mætast í undanúrslitum Evrópumóts karla í fótbolta næsta þriðjudagskvöld. Það er niðurstaða fyrri tveggja leikjanna í átta liða úrslitunum í gær þegar Spánn lagði Þýskaland, 2:1, í framlengdum leik í Stuttgart og Frakkland…
![Kveður Þjóðverjinn Toni Kroos lék sinn síðasta leik á ferlinum í gær og Dani Carvajal, samherji hans í Real Madrid, kvaddi hann með virktum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/5508cbfd-3406-41e3-98b3-108a77d8efff.jpg)
Kveður Þjóðverjinn Toni Kroos lék sinn síðasta leik á ferlinum í gær og Dani Carvajal, samherji hans í Real Madrid, kvaddi hann með virktum.
— AFP/Kirill Kudryavtsev
EM í fótbolta
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Frakkar og Spánverjar mætast í undanúrslitum Evrópumóts karla í fótbolta næsta þriðjudagskvöld. Það er niðurstaða fyrri tveggja leikjanna í átta liða úrslitunum í gær þegar Spánn lagði Þýskaland, 2:1, í framlengdum leik í Stuttgart og Frakkland lagði Portúgal í vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik í Hamborg.
Spánverjar eru komnir með fjórða Evrópumeistaratitilinn í sigtið eftir sigur í sannkölluðum spennutrylli gegn þýsku gestgjöfunum þar sem sigurmarkið kom í lok framlengingar.
Mikel Merino, leikmaður Real Sociedad sem kom inn á sem varamaður á 79. mínútu, skoraði sigurmarkið þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma í framlengingu.