Pétur Sigurðsson fæddist 10. apríl 1969. Hann lést 23. júní 2024.

Útför hans fór fram 2. júlí 2024.

Pétur vin minn hitti ég fyrst á Suðurgötunni á Akranesi fyrir margt löngu. Tengdaforeldrar hans höfðu keypt þar íbúð en tengdamóðir hans bað mig að hengja þar upp ljós og ganga frá raflögnum. Sjöfn kynnti mig fyrir Pétri og sagði „þetta er hann Pétur minn“. Hann var að læra húsasmíði og var að lagfæra ýmislegt í íbúðinni. Unnum við saman nokkur kvöld og með okkur tókst strax góð vinátta. Má segja að upp frá því talaði ég gjarnan um hann Pétur minn.

Við áttum samleið í íþróttum barna okkar. Þar var hann heldur betur liðsmaður. Pétur var sjálfur íþróttamaður af lífi og sál, Þróttari inn að beini þar sem hann hafði keppt með þeim á yngri árum. Hann var svo mikill Þróttari að hann dró okkur

...