Rekstraraðilar tjaldsvæða á Norður- og Austurlandi segja aðsókn á svæðunum hafa verið minni í júní miðað við síðasta ár. Telja þeir skýringuna helst vera veðrið, sem var ekki með besta móti framan af mánuðinum
![Tjaldsvæði Samdráttur í fjölda bókana á tjaldsvæðum, milli júnímánaða árin 2023 og 2024, var mestur á Austurlandi eða 30 til 40 prósent.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/9fb857b2-4ca3-49cf-a5f0-b7051472fac3.jpg)
Tjaldsvæði Samdráttur í fjölda bókana á tjaldsvæðum, milli júnímánaða árin 2023 og 2024, var mestur á Austurlandi eða 30 til 40 prósent.
— Morgunblaðið/Ágúst Óli Ólafsson
Guðrún S. Arnalds
gsa@mbl.is
Rekstraraðilar tjaldsvæða á Norður- og Austurlandi segja aðsókn á svæðunum hafa verið minni í júní miðað við síðasta ár. Telja þeir skýringuna helst vera veðrið, sem var ekki með besta móti framan af mánuðinum. Færri sóttu tjaldsvæði á Vesturlandi heim í júní en á Suðurlandi var nóg að gera í þessum fyrsta eiginlega sumarmánuði.
Minni umferð var líka um báða landshlutana en í samantekt Vegagerðarinnar kemur fram að mesti samdrátturinn milli ára hafi verið á
...