![Sigurður Flosason og Cathrine Legardh.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/48f663a4-bc3a-4edd-afa8-6e57bc524bdd.jpg)
Sigurður Flosason og Cathrine Legardh.
Sjöttu tónleikar sumardjasstónleikaraðar Jómfrúarinnar við Lækjargötu verða haldnir í dag kl. 15. Í þetta sinn flytur kvintett dönsku söngkonunnar Cathrine Legardh og saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar þekkt jazzlög í bland við eigin efni, en þau hafa unnið saman um árabil. Auk þeirra leika Anna Gréta Sigurðardóttir á píanó, Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.