![Leit Birnudalstindur er meðal fjalla sem liggja upp af Kálfafellsdal.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/9fe9c6b3-e8eb-426a-a0af-6c5d597a7572.jpg)
Leit Birnudalstindur er meðal fjalla sem liggja upp af Kálfafellsdal.
— Ljósmynd/Þór Kjartansson
Viðbragðsaðilar leituðu göngumanns á Skálafellsjökli í Vatnajökli í gær. Maðurinn fannst á fjórða tímanum en ekki fengust upplýsingar um ástand hans. Fannst hann í Suðursveit.
Útkall barst um klukkan sjö í morgun og voru tveir björgunarsveitarmenn sendir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á svæðið. Þá var Björgunarfélag Hornafjarðar einnig ræst út.
Talið er að göngumaðurinn hafi gengið á Miðfellsegg og að hann hafi verið einn á ferð. Göngumaðurinn starfar í ferðaþjónustu á svæðinu.