Vettvangur Hjón á mótorhjóli fórust í slysinu á Kjalarnesi sumarið 2020.
Vettvangur Hjón á mótorhjóli fórust í slysinu á Kjalarnesi sumarið 2020. — Morgunblaðið/Íris

Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál í tengslum við banaslys á Kjalarnesi sumarið 2020. Hjón á bifhjóli fórust í slysinu sem átti sér stað á nýlögðu og hálu malbiki sem stóðst ekki kröfur Vegagerðarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti héraðssaksóknara um niðurfellingu málsins. Auk hjónanna missti ökumaður bifhjóls, sem ekið var næst á eftir þeim, stjórn á bifhjóli sínu með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og slasaðist alvarlega.

Þá slasaðist tvennt, ökumenn tveggja annarra bifhjóla, þegar þau þurftu að setja fæturna niður í götuna, sem kostaði mikil átök fyrir fót- og handleggi, í því skyni að ná jafnvægi og stöðva bifhjól sem þau óku en bæði náðu þau að nema staðar án þess að falla í götuna. Niðurstaða héraðssaksóknara byggist á rannsóknargögnum málsins og lögum um meðferð sakamála og segir í tilkynningu að ekki hafi verið talið að þau

...