Íbúar á Húsavík eru andvígir uppbyggingu verslunarkjarna sunnan við bæinn. Alls bárust átján umsagnir um skipulags- og matslýsingu Norðurþings fyrir breytingu á aðalskipulagi Norðurþings í suðurbæ Húsavíkur
![Samfélag Íbúar Húsavíkur vilja þjónustu miðsvæðis.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/1f5ef677-9df2-4fe9-a72d-83b8b539f90e.jpg)
Samfélag Íbúar Húsavíkur vilja þjónustu miðsvæðis.
— Morgunnblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Valgerður Laufey Guðmundsdóttir
vally@mbl.is
Íbúar á Húsavík eru andvígir uppbyggingu verslunarkjarna sunnan við bæinn. Alls bárust átján umsagnir um skipulags- og matslýsingu Norðurþings fyrir breytingu á aðalskipulagi Norðurþings í suðurbæ Húsavíkur. Fram kemur í skipulags- og matslýsingunni að skipulagsyfirvöld telji óheppilegt að stór matvöruverslun sé staðsett í miðri bæjartraffíkinni á Húsavík. Vilji skipulagsyfirvalda stendur til þess að horfa frá núverandi stefnu aðalskipulags um uppbyggingu verslunar og
...