Evrópukeppni Fyrsta umferðin verður leikin 4. og 7. september.
Evrópukeppni Fyrsta umferðin verður leikin 4. og 7. september. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Breiðablik og Valur fá erfiða mótherja í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildar kvenna í fótbolta en dregið var í gær. Meistarar Vals mæta Ljuboten frá Norður-Makedóníu í undanúrslitum síns riðils og sigurliðið mætir Twente frá Hollandi eða Cardiff frá Wales í úrslitaleik um sæti í 2. umferð. Breiðablik mætir Minsk frá Hvíta-Rússlandi og sigurliðið mætir Eintracht Frankfurt frá Þýskalandi eða Sporting frá Portúgal í úrslitaleik.