Ein stærsta ferðahelgi ársins er gengin í garð og fjölbreytt dagskrá verður í boði víða um land. Meðal þess helsta eru Írskir dagar á Akranesi, N1 fótboltamótið á Akureyri, Goslokahátíð í Vestmannaeyjum, Allt í blóma í Hveragerði, Landsmót hestamanna í Reykjavík og svo mætti lengi upp telja
![Akranes Á Akranesi eru Írskir dagar og veðrið leikur við íbúa. Hátíðin nær hápunkti í kvöld þegar tónlistarhátíðin Lopapeysan verður haldin.](/myndir/gagnasafn/2024/07/06/437f2779-7f91-4794-a907-9e570342c07d.jpg)
Akranes Á Akranesi eru Írskir dagar og veðrið leikur við íbúa. Hátíðin nær hápunkti í kvöld þegar tónlistarhátíðin Lopapeysan verður haldin.
— Morgunblaðið/Klara Ósk
Drífa Lýðsdóttir
drifa@mbl.is
Ein stærsta ferðahelgi ársins er gengin í garð og fjölbreytt dagskrá verður í boði víða um land. Meðal þess helsta eru Írskir dagar á Akranesi, N1 fótboltamótið á Akureyri, Goslokahátíð í Vestmannaeyjum, Allt í blóma í Hveragerði, Landsmót hestamanna í Reykjavík og svo mætti lengi upp telja.
Lögreglan jákvæð fyrir helginni
Lögreglan verður vel sýnileg í efri byggðum og við þjóðvegina þessa helgi og mun fylgjast vel
...