![Kristrún Frostadóttir](/myndir/gagnasafn/2024/07/08/a21bc4bf-3e4f-49d5-9d9c-c9ee99273184.jpg)
Íslenskir vinstri menn hrífast gjarnan með þegar vel gengur hjá félögum þeirra erlendis. Þetta varð áberandi þegar Tony Blair sigraði í Bretlandi fyrir tæpum þremur áratugum og Össur Skarphéðinsson og fleiri drógu fram flokksskírteinin í Verkamannaflokknum og skáluðu í gleðivímu. Síðar urðu þeir fyrir sárum vonbrigðum og vildu sem minnst við kauða kannast.
Samfylkingin sendi sjálfboðaliða til Bretlands á dögunum og sjálfan formanninn Kristrúnu Frostadóttur að auki til að fagna með Keir Starmer þegar ljóst var orðið að hann ynni stórsigur. Það þykir gott í Samfylkingunni að viðra sig upp við erlenda sigurvegara og eflaust notalegt að vera í návist slíkra manna.
Vonandi endist vináttan betur en við Blair, en ekki eru allir fyrrverandi eða núverandi flokksmenn ánægðir með að Starmer sé hampað nú. Sema Erla Serdoglu, fyrrverandi
...