Helga Karólína Sveinsdóttir fæddist á Raufarhöfn 14. júlí 1936. Hún lést á Droplaugarstöðum 3. maí 2024.

Foreldrar hennar voru Sveinn Jósías Guðjónsson, f. 18.4. 1885, og Guðný Þórðardóttir, f. 22.12. 1899. Systkini hennar voru Sigurbjörg, Helga Kristrún (lést sjö ára gömul), Sigrún Ólöf og Andri Páll, öll látin.

Helga giftist Kristni Karli Jónssyni þann 21.12. 1956. Þau eiga einn son, Jón, og er eiginkona hans Sigrún Gunnarsdóttir. Börn þeirra eru Alexandra og Mikael. Þau eru búsett í Kanada.

Helga var jarðsungin í kyrrþey 24. júní 2024.

Elskuleg frænka mín og móðursystir er látin. Helga var kona sem stóð ekki á skoðunum sínum og vissi hvað hún vildi, enda alveg ófeimin að segja hvað henni fannst, en það risti ekki djúpt. Þau hjónin

...