Mikil en ónýtt tækifæri til bættra lífskjara

Könnun sem gerð hefur verið fyrir Samtök iðnaðarins gefur til kynna að 13% aukning verði á fjölda íbúða í byggingu á næstu tólf mánuðum, sem er umtalsvert betra útlit en fyrir hálfu ári þegar sambærileg könnun benti til 21% samdráttar.

Líkur standa til að innkoma Grindvíkinga á markaðinn að undanförnu hafi haft áhrif og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir þetta hafa gefið verktökum rými til að fara í ný verkefni. Spurning sé hvaða áhrif þetta hafi til frambúðar og hann bendir á að vaxtastig sé enn hátt og lóðaverð og gjaldtaka sveitarfélaganna hafi hækkað. Stóra málið sé skortur á hentugum lóðum.

Sigurður segir þær hugmyndir sem kynntar hafi verið nýverið í Reykjavík góðra gjalda verðar, en meira þurfi til ef mæti eigi þörfinni. Og hann lýsir áhyggjum af því að þegar vextir lækki muni húsnæðisverð hækka þar sem of fáar íbúðir

...