![Einar og Alessandra „Alessandra er óvenjulegur píanisti, mér finnst mjög gaman að vinna með henni,“ segir Einar.](/myndir/gagnasafn/2024/07/08/b5a1e7a0-66ff-44ee-9dd8-68ce141aaf3b.jpg)
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Verkin sem við ætlum að flytja tóna vel við árstíðina, hásumarið sem nú ríkir. Þetta verður þó nokkuð rómantískt, við erum ekkert að berjast við rokið og gaddinn á þorranum, okkur finnst skemmtilegt að hafa þetta á ljúfu nótunum,“ segir Einar Jóhannesson klarinettuleikari, en hann og Alessandra Pompili píanóleikari verða með tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á morgun þriðjudag. Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröð safnsins og yfirskriftin er Draumur, saumur og dans.
„Draumurinn vísar í fyrsta verkið á efnisskránni hjá okkur, en það heitir Ich stand in dunklen Träumen, eða Ég var í dimmum draumi. Þetta er verk eftir tónskáldið Clöru Schumann, eiginkonu Roberts Schumann, en hún samdi gullfalleg sönglög og
...