Friðþjófur Björnsson fæddist í Reykjavík 18. nóvember 1930. Hann lést á Droplaugarstöðum 22. júní 2024.

Foreldrar hans voru Haukur Sigfried Björnsson, f. 27. júlí 1906, og Ingibjörg Marsibil Guðjónsdóttir, f. 7. mars 1907. Fóstursystir Friðþjófs var Erla Thorarensen, f. 10. febrúar 1932, d. 3. mars 2016.

Friðþjófur kvæntist Selmu Sigurjónsdóttur, f. 2. ágúst 1930, d. 4. maí 2019. Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurbjörnsson, f. 24. júlí 1905, d. 23. desember 1998, og Ingibjörg Hjálmarsdóttir, f. 19. janúar 1907, d. 22. mars 1963.

Synir Friðþjófs og Selmu eru Haukur, f. 15. ágúst 1957, kvæntur Rannveigu Gylfadóttur, f. 17. nóvember 1960, og Sigurjón Þór, f. 25. mars 1962. Áður átti Selma Ágústu Hrönn Axelsdóttur, f. 21. september 1952, eiginmaður hennar var Þorsteinn Snædal, f. 11. febrúar 1953,

...