Ágústa Margrét Þorsteinsdóttir fæddist á Húsavík 2. mars 1975. Hún lést á Droplaugarstöðum 28. júní 2024 eftir erfið veikindi.

Foreldrar hennar eru Hulda Svansdóttir, f. 18. nóvember 1937, og Þorsteinn Jónsson, f. 11. ágúst 1934, d. 19. febrúar 2010.

Eftirlifandi eiginmaður Ágústu er Gauti Ástþórsson, f. 6. nóvember 1970. Foreldrar hans eru Elísabet Harpa Steinarsdóttir og Ástþór Ragnarsson, d. 9. febrúar 2019.

Synir Ágústu og Gauta eru: 1) Þorsteinn Jón, f. 29. ágúst 1995, giftur Guðrúnu Elínu Davíðsdóttur. Börn þeirra eru Baldur Elí og Hulda Dröfn. 2) Ástþór Ragnar, f. 20. júlí 2001. Systur Ágústu sammæðra eru Jóhanna, f. 24. mars 1967, og Sigurbjörg, f. 30. mars 1970.

Ágústa lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún stundaði nám

...