Tæknifyrirtækið KAPP er eini aðilinn sem hefur gert tilboð í hluta af þrotabúi Skagans 3X sem varð gjaldþrota fyrir skömmu. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins. Helgi Jóhannesson lögmaður, skiptastjóri Skagans 3X, vildi ekki staðfesta að KAPP væri…
Akranes Blikur á lofti í bænum.
Akranes Blikur á lofti í bænum. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Tæknifyrirtækið KAPP er eini aðilinn sem hefur gert tilboð í hluta af þrotabúi Skagans 3X sem varð gjaldþrota fyrir skömmu. Þetta herma heimildir Morgunblaðsins.

Helgi Jóhannesson lögmaður, skiptastjóri Skagans 3X, vildi ekki staðfesta að KAPP væri tilboðsgjafi, en segir að nokkrar fyrirspurnir hafi borist frá mögulegum kaupendum, einkum íslenskum aðilum, en þó sé komin fyrirspurn frá útlöndum. » 10