![Sambandsdeildin Valur og Stjarnan leika heimaleiki sína í fyrstu umferðinni í kvöld, bæði klukkan 19.](/myndir/gagnasafn/2024/07/11/6f1ab8a9-2061-4771-a82c-d22d9f9760e8.jpg)
Fréttaskýring
Haraldur Hróðmarsson
haraldurarni@mbl.is
Fjögur íslensk lið taka þátt í Evrópukeppnum karla í fótbolta í ár en undanfarin tvö ár hafa þau einungis verið þrjú. Góður árangur íslenskra liða undanfarin ár gaf íslensku deildinni fjórða Evrópusætið á ný.
Víkingar taka þátt í forkeppni Meistaradeildarinnar og eru á svokallaðri meistaraleið sem er sama leið og Breiðablik fór þegar liðið tryggði sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili. Breiðablik, Valur og Stjarnan taka öll þátt í Sambandsdeild Evrópu og spila öll fyrri leiki sína í dag og kvöld.
Breiðablik spilar á gegn Tikvesh á útivelli í Norður-Makedóníu en Valur fær Vllaznia frá Albaníu í heimsókn á Hlíðarenda og
...