Lögregla handtók síðdegis í gær 26 ára gamlan breskan karlmann, sem talinn er hafa ráðið þremur konum bana í húsi í Bushey í norðurhluta Lundúna, höfuðborgar Bretlands, á þriðjudagskvöld. Lögreglan telur að maðurinn, sem heitir Kyle Clifford, hafi…
Morðárás Lögregla við húsið í Bushey þar sem morðin voru framin.
Morðárás Lögregla við húsið í Bushey þar sem morðin voru framin. — AFP/Justin Tallis

Lögregla handtók síðdegis í gær 26 ára gamlan breskan karlmann, sem talinn er hafa ráðið þremur konum bana í húsi í Bushey í norðurhluta Lundúna, höfuðborgar Bretlands, á þriðjudagskvöld.

Lögreglan telur að maðurinn, sem heitir Kyle Clifford, hafi skotið konurnar með lásboga en ekki sé útilokað að fleiri vopnum hafi verið beitt. Konurnar voru mæðgur, Carol Hunt, sem var 61 árs gömul og tvær dætur hennar, Hannah, 28 ára og Louise, 25 ára.

Eiginmaður Carol og faðir yngri kvennanna er John Hunt sem hefur fjallað um veðreiðar fyrir breska ríkisútvarpið BBC. Blaðið Daily Mail sagði á vef sínum að Clifford hefði átt í sambandi við aðra dótturina.

Breska blaðið The Sun birti myndband þar sem Clifford sést yfirgefa húsið á þriðjudagskvöld með stóran poka sem talinn er hafa innihaldið lásbogann og hugsanlega fleiri

...